Þjónusta í boði
Við sjáum um bókhald og skil fyrir félög og einstaklinga í rekstri. Þú getur fengið allan pakkann eða valið þá þjónustu sem hentar þér úr listanum hér fyrir neðan. Listinn sýnir líka hvernig við vinnum. Verkferlarnir eru viðmið sem við sníðum að hverjum og einum.
Við bókum í dk, Konto, Payday, Reglu, Netbókhaldi og fleiri bókhaldskerfum. Fyrirspurnum svörum við innan sólarhrings.
BÓKFÆRSLA
Fylgiskjölum* má skila á skrifstofuna, í tölvupósti, rafrænt (t.d. WeTransfer) eða í bréfpósti.
Færum tvíhliða bókhald (debet og kredit) í bókhaldskerfi. Bókfærum fylgiskjöl með innslætti og lesum líka inn færslur í gegnum skeytamiðlun – rafræna reikninga.
Minnum á fylgiskjölin tímanlega svo skilafrestir standist. Bókfærslan er grunnur að virðisaukaskattsuppgjöri, ársreikningi og framtali.
*Með fylgiskjölum er átt við reikninga sem eru afhentir þegar viðskipti fara fram. Afrit af sölureikningum og frumrit kostnaðarreikninga.
SÖLUREIKNINGAR, KRÖFUGERÐ
Gefum út sölureikninga og sendum þá í tölvupósti.
Gefum líka út rafræna reikninga í gegnum skeytamiðlun. Ríkisstofnanir taka til að mynda einungis við slíkum reikningum.
Stofnum kröfur í heimabankanum þínum.
LAUNAVINNSLA, REIKNAÐ ENDURGJALD
Reiknum út laun, gerum launaseðla og sendum þér þá í tölvupósti.
Skilum rafrænt staðgreiðslu tekjuskatts og tryggingagjaldi til Skattsins, og iðgjöldum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga.
Kröfur frá þessum aðilum birtast í heimabankanum þínum.
VIRÐISAUKASKATTUR
Látum þig vita tímanlega þegar komið er að virðisaukaskattsuppgjöri og minnum á fylgiskjölin.
Gerum upp tímabilið og skilum skýrslunni rafrænt til Skattsins.
Staðfestum skilin við þig. Krafa frá Skattinum birtist í heimabankanum þínum.
AFSTEMMINGAR
Stemmum bókhaldið af við bankareikninga, kreditkortayfirlit og hreyfingarlista frá skuldunautum, lánadrottnum og Skattinum.
(Mælum með skoðunaraðgangi að heimabanka. Þá getum við sótt hreyfingarlista hvenær sem er.)
GAGNASKIL
Útbúum launamiða, verktakamiða, hlutafjármiða og aðra miða, og skilum þeim rafrænt.
Sendum þér miðana og staðfestum að skilin hafi farið fram.
REIKNINGSSKIL, UPPGJÖR
Bókfærum færslur sem tengjast reikningsskilum, til að fylgja forsendunni um afmarkað tímabil.
Förum yfir og stemmum af samtölur í aðalbók til að sannreyna að stöður séu réttar.
ÁRSREIKNINGUR
Gerum ársreikninga og árshlutareikninga.
Minnum þig á (ef þörf er á) að huga þarf að ársreikningagerð.
Sendum þér ársreikninginn í pdf, ásamt helstu lykilatriðum, í tölvupósti.
Stjórn og framkvæmdastjóri samþykkja ársreikninginn með tölvupósti til okkar.
Skilum rafrænt til ársreikningaskrár og skattadeildar Skattsins.
Áframsendum staðfestingu á skilunum frá ársreikningaskrá. (Mikilvægt, því vanskil geta varðað sekt.)
FRAMTAL
Gerum framtalið og minnum þig á þegar kemur að framtalsgerð.
Skilum rafrænt til skattadeildar Skattsins og áframsendum staðfestingu á skilunum.
Skatturinn birtir álagningarseðil. Krafa birtist í heimabankanum þínum, eða inneign er greidd út.
Nánar um framtalsþjónustu okkar og skilafresti.
ARÐUR
Skoðum óráðstafað eigið fé og gerum tillögu um arðsúthlutun.
Skilum rafrænt staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts af arði.
Sendum þér skilagreinar og staðfestum skilin. Krafa frá Skattinum birtist í heimabankanum þínum.
STOFNUN, SLIT FÉLAGS
Stofnum einkahluta-, sameignar- og samlagsfélög.
Sjáum um slit félaga.
SAMSKIPTI VIÐ SKATTAYFIRVÖLD
Sendum inn umsóknir til launagreiðenda- og virðisaukaskattskrár hjá Skattinum.
Svörum fyrirspurnum frá Skattinum.
Semjum og sendum kærur til Skattsins og yfirskattanefndar.
Sjáum um önnur samskipti við Skattinn.
ÝMIS RÁÐGJÖF
Við veitum ráðgjöf um bókhald, skatta og reikningsskil.
Ertu að hefja rekstur? Sjá spurt og svarað fyrir verktaka og nýja rekstraraðila.
Algengar spurningar um bókhald
Hvað er innifalið í bókhaldinu?
Bókfærsla, afstemmingar, virðisaukaskattsuppgjör, launavinnsla, ársreikningur og framtal, eftir því sem reksturinn þarf. Þú getur fengið allan pakkann eða bókhaldsaðstoð í einstökum verkum.
Hvað kostar bókhald?
Verðið fer eftir umfangi rekstrarins, fjölda færslna og hvort launavinnsla fylgir. Almennt vinnum við eftir tímaskráningu og þú greiðir fyrir þann tíma sem fer í verkið. Fyrsti fundurinn er ókeypis og þar förum við yfir hvað bókhaldið þitt þarf.
Hvernig skipti ég um bókara?
Þú lætur okkur vita og við sjáum um flutninginn. Við höfum samband við fyrri bókara eða bókhaldsstofu ef þarf, fáum gögnin og tökum við þar sem frá var horfið.
Í hvaða bókhaldslausnum vinnið þið?
Við bókum í dk, Konto, Payday, Reglu, Netbókhaldi og fleiri bókhaldslausnum, og lesum inn rafræna reikninga í gegnum skeytamiðlun.
Fyrsti fundurinn er ókeypis
Hvort sem þú ert að hefja rekstur eða flytja bókhaldið frá annarri stofu förum við yfir stöðuna með þér og hvernig við getum aðstoðað, án skuldbindingar. Sendu okkur línu og við svörum innan sólarhrings.
