Skip to content

SKATTFRAMTAL

FRAMTALSÞJÓNUSTA

Skattframtal einstaklinga

Við gerum skattframtalið fyrir þig, tryggjum rétt skil á réttum tíma og að þú fáir þann frádrátt og þær bætur sem þú átt rétt á. Forskráð framtal nær ekki yfir allt, til að mynda verktakatekjur, rekstur á eigin kennitölu eða hlutabréfaviðskipti.

Verð fyrir framtal 2027
Grunngjald: 54.000 kr. m/vsk
Ungmenni sem búa hjá foreldrum: 12.500 kr. m/vsk
Ef þú ert í rekstri bætist við tímagjald fyrir bókfærslu, rekstrarskýrslu og uppgjör.

Svona virkar þetta

  1. Þú hefur samband í gegnum formið eða á skatt@skatt.is. Þú getur sent okkur skilalykil fagaðila.
  2. Við skoðum fyrst. Sjáum hvað vantar og biðjum um upplýsingar.
  3. Við gerum framtalið. Við athugum frádrætti og berum saman við framtal fyrra árs til að sjá hvort eitthvað vanti. Við gerum rekstrarskýrslu ef við á.
  4. Þú samþykkir. Þú færð bráðabirgðaútreikning í tölvupósti og við biðjum um staðfestingu frá þér áður en við sendum inn.

Svona sækir þú skilalykil fagaðila

  1. Farðu á Sækja veflykil hjá Skattinum.
  2. Skráðu kennitöluna þína og veldu að fá skilalykil fagaðila sendan í heimabankann. Hann birtist þar undir rafrænum skjölum.
  3. Sendu okkur lykilinn á skatt@skatt.is.

Skilafrestur skattframtals 2027

27.02.27  –  Netframtal einstaklinga 2027 [v/uppgjörsárs 2026] verður opnað á þjónustuvefnum, hjá Skattinum

13.03.27  –  Lokaskiladagur almenns frests fyrir einstaklingsframtöl

15.04.27  –  Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum utan rekstrar

15.04.27  –  Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum með rekstur

29.05.27  –  Álagning einstaklinga

Lækkun á tekjuskattstofni

Við viljum benda á að hægt er að sækja um lækkun (ívilnun) á tekjuskattstofni. Þar má nefna kostnað vegna jarðarfarar, glasafrjóvgana og ungmenna í framhaldsskóla. Einnig vegna veikinda, slysa, ellihrörleika, mannsláts, veikinda/fötlunar barns, framfærslu vandamanna, eignatjóns og tapaðra krafna.

Viltu aðstoð við framtalið?

Við gerum framtalið, athugum frádrætti og sendum ekki inn fyrr en þú samþykkir. Sendu okkur línu og við svörum innan sólarhrings.

Back To Top