Skip to content

AÐ HEFJA REKSTUR

SPURT OG SVARAÐ FYRIR VERKTAKA

Að hefja rekstur er stór þröskuldur fyrir marga. Það eru ótrúlega margir sem starfa sem verktakar. Það geta verið tímabundin verkefni, tilfallandi aukavinna eða aðalstarf.

Höfum tekið saman spurt og svarað fyrir þá sem eru að hefja rekstur.

Neðst á síðunni eru gagnlegir vefhlekkir. (Tekjuskattur hér er samnefnari fyrir tekjuskatt og útsvar. Staðgreiðsla merkir fyrirframgreiddur skattur af launum, greiddur mánaðarlega).

Uppfært í nóvember 2026. Fjárhæðir og hlutföll miðast við árið 2026.

Efnisyfirlit

Grunnatriði

Skil og skráning

Reikningar og bókhald

Kostnaður og skattar

Reiknað endurgjald

Rekstrarform og ábyrgð

Frekari upplýsingar

Orð sem gott er að þekkja

  • Skilagrein: skýrsla sem sýnir laun og gjöld af þeim, send til Skattsins og lífeyrissjóðs.
  • Eindagi: síðasti dagur til að greiða án álags.
  • Útskattur: virðisaukaskatturinn sem lagður er á söluna.
  • Innskattur: virðisaukaskatturinn af kaupum vegna rekstrarins.
  • Tryggingagjald: skattur sem vinnuveitandi greiðir af launum.

Grunnatriði

HVENÆR TELST ÉG VERKTAKI OG HVENÆR LAUNÞEGI?

Það ræðst ekki af því hvað samningurinn heitir, heldur af því hvernig vinnan fer fram í raun. Skatturinn metur aðstæður í heild. Hann getur hafnað umsókn um vsk-númer eða fært tekjur yfir í laun eftir á.

Atriði Verktaki Launþegi
Fyrir hverja er unnið? Marga, á almennum markaði Einn eða fáa
Hver leggur til aðstöðu, verkfæri og efni? Verktakinn Kaupandi þjónustunnar
Hver ábyrgist árangur verksins? Verktakinn Vinnuveitandinn
Hver ber ábyrgð á tjóni? Verktakinn Vinnuveitandinn
Hver ræður hvar, hvernig og hvenær er unnið? Verktakinn Vinnuveitandinn
Hvernig er greitt? Fyrir unnið verk Fyrir tíma

Ef þú vinnur fyrir einn eða fáa aðila fylgir eyðublaðið RSK 10.31, Könnun á starfssambandi, skráningunni hjá Skattinum. Fylla þarf út eitt eyðublað fyrir hvert fyrirtæki sem unnið er fyrir, og Skatturinn metur svo stöðuna út frá svörunum.

HVAÐ ER REKSTUR?

Flestir hafa reynslu af rekstri heimilisins. Í meginatriðum er rekstur verktakans eins. Inn koma tekjur, til frádráttar kemur kostnaður og eftir stendur (vonandi) afgangur. Flest okkar stefna að því að eiga eftir afgang og það gildir um reksturinn líka.

Tekjur – kostnaður = hagnaður. Þessi jafna er grundvallarlögmál í öllum rekstri.

Við sölu verða til tekjur. Kostnaður eru þau gjöld sem eiga á árinu að ganga til að afla teknanna, tryggja þær og halda þeim við.

Heildarlaun og reiknað endurgjald, mótframlag í lífeyrissjóð og tryggingagjald eru líka kostnaður. (Sjá nánar í kaflanum Reiknað endurgjald).

En tekjuskattur og iðgjald launþega í lífeyrissjóð eru EKKI kostnaður.

Því hærra sem reiknað endurgjald og/eða heildarlaun eru, því lægri verður hagnaðurinn. Kosturinn við það er að greiðsla á opinberum gjöldum helst í hendur við tekjuinnstreymið og minni skatt þarf að greiða eftir á, þegar álagningarseðillinn er gefinn út.

HVAÐ ÞÝÐIR AÐ VERA Í REKSTRI Á EIGIN KENNITÖLU?

Þegar þú ert í rekstri á eigin kennitölu ertu einstaklingur í atvinnurekstri, án þess að hafa stofnað félag um reksturinn. Tekjur og kostnaður rekstrarins koma fram í rekstrarskýrslu sem fylgir skattframtalinu þínu, og þú berð sjálfur ábyrgð á skuldbindingum rekstrarins.

Þú þarft að reikna þér endurgjald og standa skil á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og iðgjöldum í lífeyrissjóð. Ef starfsemin er virðisaukaskattsskyld þarft þú líka að skila inn virðisaukaskatti. Fyrir marga er þetta einfaldasta leiðin til að hefja rekstur.

HVORT ER BETRA FYRIR MIG AÐ VERA LAUNÞEGI EÐA VERKTAKI?

Verktaki þarf að fá hærri tekjur (án vsk) en heildarlaun launþega til að þeir standi jafnfætis. Þumalputtareglan er að verktaki fái a.m.k. 30% hærri tekjur (án vsk) en launþegi fær í heildarlaun. (En þá er gert ráð fyrir að verktakinn sé ekki með neinn annan kostnað en launatengda liði). (Heildarlaun x 1,3 = tekjur verktakans).

Þetta er „þumalputtaregla“, þar sem það er huglægt hvernig réttindi og skyldur eru verðmetin ofan á beinan kostnað, eins og tryggingagjald og mótframlag í lífeyrissjóð.

Launþegi er með áunnin réttindi, t.d. uppsagnarfrest, veikinda- og orlofsréttindi, ábyrgðasjóð launa o.s.frv. Svo bætist líka við kostnaður hjá verktaka, sem þarf að greiða tryggingagjald til Skattsins og mótframlag og endurhæfingarsjóð til lífeyrissjóðs, sem launþegi þarf ekki að gera.

Síðan er líka óbeinn kostnaður fyrir verktaka eins og að greiða bókara fyrir þjónustu, ýmsar tryggingar o.s.frv. Við þessu má bæta að verktaki þarf að bera ábyrgð á öllum skilum og tryggingum sjálfur sem launþegi er laus við.

Skil og skráning

ÉG ER AÐ FÁ NOKKRAR VERKTAKAGREIÐSLUR Á ÁRI SEM ERU MÍNAR TEKJUR, ER EITTHVAÐ SEM ÉG ÞARF AÐ STANDA SKIL Á?

Ef tekjur eru 600.000 kr. eða lægri á árinu fellur það utan staðgreiðslu. (Þá þarf ekkert að gera nema færa tekjur og gjöld inn á skattframtalið).

Ef tekjur ársins eru 2.000.000 kr. (án vsk) eða lægri, þá þarf ekki að standa skil á virðisaukaskatti. En það er valkvætt.

Við þessu má bæta að það er algengur misskilningur að tekjur undir ákveðnu lágmarki séu skattfrjálsar. Þetta er ekki rétt, allar tekjur eru skattskyldar. Utan staðgreiðslu merkir t.d. að tekjuskatturinn er greiddur eftir á með álagningarseðlinum.

ÉG ER AÐ HEFJA REKSTUR, Á HVERJU ÞARF ÉG AÐ STANDA SKIL?

Það þarf að senda skilagreinar fyrir tekjuskatt og tryggingagjald til Skattsins af launum/reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Þær eru sendar sameiginlega í einni skýrslu sem kallast skil á staðgreiðslu.

Til viðbótar þarf að senda skilagreinar fyrir iðgjald launþega, mótframlag vinnuveitanda og endurhæfingarsjóð, til lífeyrissjóðs mánaðarlega. Þær eru sendar sameiginlega í einni skýrslu sem kallast skil á lífeyrisiðgjöldum.

Það getur verið nóg að senda skilagreinar til Skattsins og lífeyrissjóðs einu sinni á ári (fyrir tímabilið jan-des), ef tekjur eru lægri en 1.000.000 kr. á ársgrundvelli.

Ef starfsemin er virðisaukaskattsskyld þá þarf að skila inn virðisaukaskattsskýrslu á tveggja mánaða fresti. (Jan-feb, mar-apr, …)

Ef tekjurnar eru 4.000.000 kr. (án vsk) eða lægri á ársgrundvelli, þá þarf eingöngu að skila eina virðisaukaskattsskýrslu á ári (fyrir tímabilið jan-des).

Síðan þarf að fylla út rekstrarskýrslu sem fylgir með framtalinu, einu sinni á ári.

Öll þessi skil er hægt að framkvæma og senda rafrænt. Á það má benda að þegar skilagreinar eru sendar inn, þá stofnast kröfur frá innheimtuaðilum sjálfkrafa í heimabanka, fljótlega á eftir. (Sjá hlekk neðst, rafræn skil).

Tekjur á ári (fyrir kostnað) Hvað gildir
600.000 kr. eða lægri Fellur utan staðgreiðslu. Aðeins þarf að færa tekjur og gjöld inn á skattframtalið.
Lægri en 1.000.000 kr. Getur verið nóg að senda skilagreinar til Skattsins og lífeyrissjóðs einu sinni á ári.
2.000.000 kr. eða lægri (án vsk) Ekki þarf að standa skil á virðisaukaskatti, en það er valkvætt.
4.000.000 kr. eða lægri (án vsk) Nóg að skila einni virðisaukaskattsskýrslu á ári.

HVENÆR ÞARF ÉG AÐ STANDA SKIL Á OPINBERUM GJÖLDUM?

Skilagreinar fyrir staðgreiðslu þarf að senda til Skattsins á mánuðinum á eftir, með eindaga kringum 15. hvers mánaðar. T.d. ef vinnan fer fram í janúar, þá er staðgreiðslan reiknuð og send inn í byrjun febrúar, með eindaga 15. feb.

Skilagreinar til lífeyrissjóðs eru með eindaga í mánuðinum á eftir, kringum lok mánaðarins. T.d. ef vinnan fer fram í janúar, þá eru lífeyrisiðgjöldin reiknuð og send inn í byrjun febrúar, með eindaga 28. feb.

Ef ein skilagrein er send á ári vegna staðgreiðslu og iðgjalda, fyrir tímabilið jan-des, þá fer uppgjörið fram í byrjun janúar árið eftir, með eindaga 15. jan. til Skattsins og 31. jan. til lífeyrissjóðs.

Virðisaukaskattstímabilin eru sex á ári, jan-feb (með eindaga 5. apr.), mar-apr (með eindaga 5. jún.) og þannig koll af kolli. Virðisaukaskatturinn er þá gerður upp eftir tímabilið, t.d. fyrir tímabilið jan-feb, þá er uppgjörsmánuðurinn mars og vsk-skýrsla send inn fyrir eindaga, 5. apr.

Virðisaukaskattsskýrsla sem senda á einu sinni á ári fyrir tímabilið jan-des er með eindaga 5. feb. árið eftir.

Framtölin eru gerð í mars árið eftir rekstrarár og eru þá lokaskil ársins. Álagningarseðlar eru gefnir út í lok maí og eru þá lokauppgjör á skattinum. Almennt er rekstrarár sama og almanaksár.

Hvernig kemst ég á skrá hjá Skattinum og lífeyrissjóði, ef ég þarf að gera skil á staðgreiðslu, iðgjöldum í lífeyrissjóð og virðisaukaskatti?

Sækja þarf um í launagreiðendaskrá og um vsk-númer. Það er gert rafrænt á þjónustuvef Skattsins. (Sjá hlekk neðst, rafræn skráning).

Þegar umsóknin hefur verið afgreidd eru veflyklar (fyrir staðgreiðslu og vsk) gerðir aðgengilegir hjá Skattinum.

Síðan þarf að velja sér lífeyrissjóð og sækja um veflykil hjá viðkomandi (hægt að gera rafrænt á heimasíðu viðkomandi lífeyrissjóðs). Ekki þarf að senda inn formlega umsókn. Hægt er að senda inn skilagrein um leið og veflykill er kominn í hendurnar.

Við þessu má bæta að hægt er að velja á milli nokkurra lífeyrissjóða og á síðu Skattsins er hægt að sjá yfirlit yfir alla lífeyrissjóði sem bjóða upp á skylduaðildarsjóði og/eða séreignasjóði. (Sjá hlekk neðst, listi yfir lífeyrissjóði).

Reikningar og bókhald

ÉG ER AÐ FÁ VERKTAKAGREIÐSLUR SEM ERU MÍNAR TEKJUR, ÞARF ÉG AÐ GEFA ÚT REIKNINGA?

Já. Best og þægilegast er að nota rafræn sölukerfi til að útbúa og gefa út reikninga. Mörg fyrirtæki (t.d. Konto, dk) bjóða upp á þessa þjónustu. Leyfilegt er að nota rafræn sölukerfi ef fyrir liggur undirrituð yfirlýsing frá seljanda kerfisins um að það uppfylli skilyrði. Lista yfir slík kerfi má sjá á heimasíðu Skattsins. (Sjá hlekk neðst, rafræn sölukerfi).

Erlend sölukerfi má aðeins nota ef slík yfirlýsing liggur fyrir.

Þegar um prentuð eintök er að ræða, þá þarf að gefa út reikninga sem eru fyrirfram númeraðir. Þeir eiga að vera í þríriti og viðskiptavinurinn á að fá frumritið. Hin ritin á að geyma og nota í bókhaldið. Hægt er að kaupa blokkir sem á stendur „reikningur“ með 50 reikningum í þríriti í flestum bókabúðum.

Ekki er leyfilegt að búa til reikninga t.d. í Word eða Excel.

HVAÐ ÞARF AÐ KOMA FRAM Á REIKNINGI OG HVERNIG Á HANN AÐ LÍTA ÚT?

Á reikningi á alltaf að standa orðið „reikningur“. Reikningsnúmer á alltaf að koma fram á reikningi. Hver reikningur er með sitt auðkennisnúmer. Í rafrænum sölukerfum gerist það sjálfkrafa en á handskrifuðum reikningum eru númerin fyrirfram áprentuð.

Reikningsnúmer eiga að vera í réttri töluröð, 1,2,3,4 … og mikilvægt að henda ekki reikningi, þó að hann sé ónýttur svo að það vanti ekki númer í talnaröðinni. Þetta atriði á eingöngu við um handskrifaða reikninga, því í rafrænum sölukerfum úthlutar kerfið númerum í talnaröð og ekki er hægt að eyða reikningi.

Það sem þarf að koma fram á reikningi er:

  1. Útgáfudagur
  2. Nafn og kennitala kaupanda
  3. Nafn, kennitala og vsk-númer seljandans
  4. Tegund sölu (þ.e. lýsing á hinu selda)
  5. Magn
  6. Einingarverð
  7. Heildarverð
  8. Fjárhæð vsk
  9. Skatthlutfall (11% eða 24%)

Ef reikningur úr rafrænu sölukerfi er prentaður út þarf að standa á honum að hann sé frumrit, t.d. „Þessi reikningur er rafrænt ytra frumgagn skv. reglugerð nr. 505/2013“.

Gott er að skoða reikninga t.d. frá hinum og þessum verslunum til að sjá hvernig þeir eru uppbyggðir.

HVAÐ ER RAFRÆNN REIKNINGUR, SKEYTAMIÐLUN?

Með skeytamiðlun þá er hægt að senda og taka á móti reikningum, beint á milli kerfa. Sölureikningur er þá ekki sendur í tölvupósti heldur beint í bókhaldskerfi móttakanda og skráist þar inn. Sama með móttöku kostnaðarreikninga, skráist beint inn í bókhaldskerfi viðtakanda.

Þegar reikningur er kominn inn í kerfið, þá þarf viðtakandinn að ákveða á hvaða bókhaldslykil reikningurinn á að bókast. Þetta merkir að allur innsláttur reikninga er að hverfa. Ekki er ólíklegt að í náinni framtíð verði öll bókfærsla sjálfvirk.

HVAÐ MERKIR FÆRSLA BÓKHALDS?

Það er að skrásetja hver og ein viðskipti, hvort sem það er sala eða kaup. Það er skráningarskylda.

Ekki er nauðsynlegt að færa tvíhliða bókhald, debet og kredit hjá einyrkja með einfaldan rekstur og er sú heimild tekin fram í lögum um bókhald. (Að uppfylltum skilyrðum þó, t.a.m. heimilt hjá „þjónustu þar sem fyrst og fremst er seld vinna…“).

Það þarf að skrásetja allar færslur vegna sölu og kostnaðar í dagbók. Hver færsla fær sitt einstaka númer, í réttri töluröð (1,2,3,4,…), sem skráð er í dagbók og samsvarandi númer skráð á reikning sem kallast þá fylgiskjal. Það er gert til að hægt sé að rekja færslu frá dagbók til fylgiskjals og öfugt.

Þegar færsla er skráð, þá þarf að skrá dagsetningu miðað við útgáfudag reiknings, en ekki þegar greiðslan fer fram, hvort sem það er fyrir sölu eða kostnað. Þetta á líka við virðisaukaskattinn.

Best og þægilegast er að nota bókhaldskerfi. (Sjá hlekk neðst, bókhaldskerfi).

Óþarfi er að bókfæra reiknað endurgjald og launatengda liði. Þetta er hvort sem er allt skráð í staðgreiðsluskrá Skattsins og hjá lífeyrissjóðunum. En það þarf samt að taka það saman fyrir framtal.

Þegar búið er að skrá allar færslur ársins (1. jan. – 31. des.), þá þarf að leggja saman allar upphæðir, s.s. sölu og kostnað (samtala á hverja tegund) og færa samtöluna inn á rekstrarskýrslu sem fylgir framtalinu.

HVE LENGI ÞARF AÐ GEYMA REIKNINGA FYRIR TEKJUM OG KOSTNAÐI?

Í sjö ár. Hér er tilvitnun úr lagatexta: „Allar bækur, sem fyrirskipaðar eru í lögum þessum, ásamt bókhaldsgögnum og fylgiskjölum, […], skulu varðveittar hér á landi á tryggan og öruggan hátt í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs“. (Lög um bókhald).

Kostnaður og skattar

GET ÉG NOTAÐ KOSTNAÐ Á MÓTI MÍNUM TEKJUM OG INNSKATT Á MÓTI ÚTSKATTI EF STARFSEMIN MÍN ER VIRÐISAUKASKATTSSKYLD?

Já, og það er mjög mikilvægt að telja fram allan kostnað og innskatt sem tengjast rekstrinum, til að lágmarka skattbyrðina. Í hvert sinn sem keypt er vara eða þjónusta, þá þarf að fá reikning frá seljanda. Reikningur er staðfesting á að viðskiptin hafi farið fram. Enn fremur þarf vsk-númer seljanda að vera opið til þess að heimilt sé að nýta innskatt. (Sjá hlekk neðst, vsk-númer, [vsk-númer opið/lokað]).

Reikningur er sönnunargagn og það er mikilvægt að geyma alla reikninga. Reikningur er forsenda þess að hægt sé að nýta kostnað á móti tekjum og innskatt á móti útskatti. Þar sem reikningur er sönnunargagn þá skiptir form hans og rétt uppsetning máli, svo að hann haldi gildi sínu.

Kvittun dugar ekki, heldur verður það að vera reikningur stílaður á kaupanda, á pappír eða rafrænn.

Reikningur er staðfesting á að viðskipti hafi farið fram en kvittun er staðfesting á að reikningurinn sé greiddur.

Ef reikningur er ekki afhentur þar sem viðskiptin fara fram, þá er hann sendur t.d. í tölvupósti eða í gegnum skeytamiðlun.

HVAÐ MÁ ÉG NOTA SEM KOSTNAÐ OG INNSKATT Í MÍNUM REKSTRI?

Almennt séð er það kostnaður og innskattur sem tengist rekstrinum. „Frá tekjum er heimilt að draga rekstrarkostnað, það eru þau gjöld sem eiga á árinu að ganga til að afla teknanna, tryggja þær og halda þeim við“. (Lög um tekjuskatt).

Heimildir til að nýta innskatt eru þrengri en heimildir til að nota kostnað til frádráttar. Yfirleitt er það þá einhvers konar óbeinn kostnaður sem ekki er heimilt að nýta innskatt af, en er samt heimilt að nota sem frádráttarbæran kostnað.

Flokkun eftir tegund kostnaðar. Hér eru dæmi um algengan kostnað (og innskatt þar sem hann á við).

  1. Reiknað endurgjald (og/eða heildarlaun)
  2. Tryggingagjald (skattur sem má gjaldfæra)
  3. Mótframlag í lífeyrissjóð
  4. Endurhæfingarsjóður (skylda, lífeyrissjóðir innheimta)
  5. Rekstrarkostnaður (kostnaður sem tengist með beinum hætti, t.d. málning hjá málara)
  6. Aðkeypt þjónusta (þegar er verið að kaupa þjónustu / vinnuframlag af öðrum)
  7. Skrifstofukostnaður (t.a.m. áskriftir – [símagjöld, hugbúnaður, bókhaldskerfi], skrifstofuvörur)
  8. Gjaldfærð áhöld og tæki (tölva, prentari, skrifstofustóll)
  9. Rekstrarkostnaður ökutækis* (sjá skýringar neðar; innskattur almennt ekki nýttur hér)
  10. Sölukostnaður (auglýsingar)
  11. Ferðakostnaður (innskattur almennt ekki nýttur hér)

En hér eru nokkur dæmi um kostnað sem er ekki augljós, en er frádráttarbær.

  1. Kaffiveitingar í vinnutíma og kostnaður við námskeið sem tengjast starfinu beint. (Innskattur almennt ekki nýttur hér).
  2. Fatnaður sem er merktur starfseminni og öryggis- eða hlífðarfatnaður.
  3. Risnu 0,5% og styrki til líknarmála 0,75% af tekjum má gjaldfæra. (Innskattur almennt ekki nýttur hér).
  4. Árshátíð (starfsmannaferð, jólagleði eða sambærilegt – hámark 192.000 kr. á starfsmann, 2026). (Innskattur almennt ekki nýttur hér).
  5. Samgöngustyrkir (strætó, hjólreiðar – hámark 138.000 kr. á starfsmann, 2026).
  6. Heilsurækt (t.d. íþróttaiðkun, endurhæfing – hámark 85.000 kr., 2026) – á starfsmann.

*Rekstrarkostnað ökutækis má gjaldfæra, en ekki nýta innskatt af, nema ef það er á rauðum númerum eða uppfyllir ákveðin skilyrði.

Rekstrarkostnað ökutækis sem líka er notað í eigin þágu má gjaldfæra, en ekki að fullu. Það þarf að hlutfalla notkun á milli eigin nota og vegna reksturs og setja síðan rekstrarkostnaðinn í framtalið. Halda þarf akstursdagbók til að sanna notkun, vegna reksturs.

Rekstrarkostnaður ökutækis er:

  1. eldsneyti
  2. viðgerð og varahlutir
  3. dekk og dekkjaskipti
  4. smurning
  5. tryggingar
  6. bifreiðagjöld
  7. annar rekstrarkostnaður, t.d. bílaþvottur, skoðun, bílastæði
  8. fyrningar

Akstur á milli heimilis og vinnustaðar telst ekki frádráttarbær kostnaður.

HVERNIG ER REKSTURINN SKATTLAGÐUR?

Best er að ímynda sér þrjú sjálfstæð kerfi.

Fyrsta kerfið er þegar hagnaður er skattlagður. [Tekjur – kostnaður = hagnaður]. Hagnaður er skattlagður eftir að rekstrarniðurstaða ársins liggur fyrir, með reikningsskiladag 31. des. hvers árs, og skatturinn er greiddur eftir á (með álagningarseðlinum).

Kerfi númer tvö er virðisaukaskattskerfið. Virðisaukaskattsjafnan er þessi: Útskattur – innskattur = virðisaukaskattur til greiðslu. Útskattur er lagður á sölu en innskattur af kostnaði er dreginn frá. Með virðisaukaskattskerfinu er verið að skattleggja hver og ein viðskipti milli aðila.

Kerfi númer þrjú eru skattar og gjöld á laun og reiknað endurgjald. Þetta eru tekjuskattur og tryggingagjald til Skattsins, og iðgjald launþegans, mótframlag vinnuveitandans og endurhæfingarsjóður til lífeyrissjóðs. Stofninn er þá heildarlaun og/eða reiknað endurgjald.

Tekjuskattur af hagnaði og af launum/reiknuðu endurgjaldi er SAMI skatturinn. Persónuafslátturinn gengur upp í hvort tveggja hjá verktökum (rekstur á eigin kennitölu).

Síðan eru ýmsir aðrir skattar (sem ekki verður fjallað nánar um hér) sem eru lagðir á reksturinn. Þeir eru fyrirframgreiðsla þinggjalda, fjármagnstekjuskattur, gistináttaskattur, skattar vegna fjármálaþjónustu, bifreiðagjald, olíugjald, áfengisgjald, búnaðargjald, jöfnunargjald alþjónustu, kílómetragjald, markaðsgjald, skilagjald, úrvinnslugjald, umhverfis- og auðlindaskattar, vörugjald og útvarpsgjald.

HVERNIG FINN ÉG SKATTSTOFNA, HLUTFÖLL OG HVERNIG REIKNA ÉG ÚT SKATTANA?

Útreikningar m.v. lágmarksskyldu árið 2026. Tekjuskattur er hér samnefnari fyrir tekjuskatt og útsvar. Staðgreiðsla merkir að tekjuskattur og útsvar eru fyrirframgreidd mánaðarlega.

Reiknað endurgjald og staðgreiðsla (allar fjárhæðir á mánuði):

  • Reiknað endurgjald x 0,115 = Mótframlag vinnuveitanda í lífeyrissjóð
  • Reiknað endurgjald x 0,04 = Iðgjald launþega í lífeyrissjóð
  • Reiknað endurgjald x 0,001 = Endurhæfingarsjóður
  • (Reiknað endurgjald + mótframlag í lífeyrissjóð) x 0,0635 = Tryggingagjald
  • Persónuafsláttur = 72.492 kr. á mánuði
  • (Reiknað endurgjald – iðgjald í lífeyrissjóð) = Tekjuskattstofn
  • Sá hluti stofnsins sem er undir 498.122 kr. x 0,3149 = Neðsta skattþrep tekjuskatts
  • Sá hluti stofnsins sem er á bilinu 498.122 til 1.398.450 kr. x 0,3799 = Miðþrep tekjuskatts
  • Sá hluti stofnsins sem er yfir 1.398.450 kr. x 0,4629 = Efsta skattþrep tekjuskatts
  • Þegar niðurstaða á tekjuskattinum er komin þá kemur persónuafslátturinn til frádráttar

Tekjuskattur af hagnaði á ársgrundvelli. Þrepin gilda um reiknað endurgjald og hagnað samanlagt.

  • Tekjur – kostnaður = hagnaður
  • Sá hluti stofnsins sem er undir 5.977.464 kr. x 0,3149 = Neðsta skattþrep tekjuskatts
  • Sá hluti stofnsins sem er á bilinu 5.977.464 til 16.781.400 kr. x 0,3799 = Miðþrep tekjuskatts
  • Sá hluti stofnsins sem er yfir 16.781.400 kr. x 0,4629 = Efsta skattþrep tekjuskatts

Ef persónuafsláttur er ekki fullnýttur þá kemur hann til frádráttar til lækkunar á tekjuskattinum af hagnaðinum. Iðgjöld í lífeyrissjóð eru ekki dregin frá hagnaði.

Virðisaukaskattur (við 11% vsk kemur 0,11 í stað 0,24 og 1,11 í stað 1,24).

  • Upphæð án vsk x 0,24 = Vsk-upphæð
  • Upphæð með vsk / 1,24 = Upphæð án vsk
  • Vsk-upphæð / 0,24 = Upphæð án vsk

EF ÉG HEF REKSTUR OG GERIST VERKTAKI, HVERSU MIKIÐ AF TEKJUM FER Í MINN VASA?

Peningarnir fara fyrst í vasa verktakans svo ágætt er að gera sér grein fyrir því hversu mikið verður eftir af þeim, þegar búið er að gera upp og greiða í skatta og opinber gjöld.

Það getur líka liðið langur tími frá því að peningar fara fyrst í vasann þar til greiða þarf skatt af þeim. Hluti af tekjum sem verða til í janúar 2026 getur verið skattlagður í lok maí 2027 (með álagningarseðlinum), s.s. tekjuskattur af hagnaði.

Sama hjá þeim sem eru í ársskilum með virðisaukaskattinn. Virðisaukaskattur sem verður til t.d. í janúar 2026 er greiddur í febrúar 2027. (Bankar bjóða upp á innistæðureikninga fyrir virðisaukaskattinn sem gott er að nota. Þá er hægt að taka virðisaukaskattinn strax frá og leggja inn á hann).

Ef salan er undanþegin virðisaukaskatti, þá er þumalputtareglan að u.þ.b. 60% fari í vasann og 40% í skatta. (Reyndar minnkar vægi persónuafsláttar því hærri sem tekjurnar verða, og öfugt).

Ef salan er með virðisaukaskatti (24%) þá er þumalputtareglan að u.þ.b. 50% fari í vasann og 50% í skatta (álagður virðisaukaskattur er þá hafður með, enda fer hann fyrst í vasa verktakans).

Reiknað endurgjald

HVAÐ MERKIR REIKNAÐ ENDURGJALD?

Til einföldunar er hægt að segja að reiknað endurgjald og laun séu það sama, þ.e.a.s. heildarlaun en ekki útborguð laun.

Reiknað endurgjald og heildarlaun eru stofn sem gjöld eru reiknuð af. Af þeim stofni eru reiknuð út öll launatengdu gjöldin. Til viðbótar má benda á að launþegi fær útborguð laun, en eini tilgangur reiknaðs endurgjalds er að mynda stofn til að reikna út frá.

Þegar launþegi fær launaseðil í hendurnar, þá sér hann ekki þann hluta sem vinnuveitandi stendur skil á og greiðir. En verktakinn er bæði vinnuveitandi og launþegi. Launþeginn þarf ekki að standa skil á neinu og ber ekki ábyrgð á því, heldur vinnuveitandinn. Verktakinn ber þessa sömu skyldu og ábyrgð og vinnuveitandi launþegans gerir.

Hvers vegna reiknað endurgjald? Verktaki fær ekki laun. Án reiknaðs endurgjalds væri enginn stofn fyrir staðgreiðslu og launatengd gjöld.

Reglurnar um reiknað endurgjald gilda líka um eigendur einkahlutafélaga (ehf.) sem starfa við eigið félag. Þeir þurfa að reikna sér laun frá félaginu í samræmi við viðmiðunarreglur Skattsins.

HVERNIG VEIT ÉG HVAÐ ÉG Á AÐ REIKNA MÉR Í ENDURGJALD?

Skatturinn gefur út hvað verktakar eigi að reikna sér í endurgjald í upphafi hvers árs. Skatturinn gefur út viðmiðunarflokka og flokkað er út frá tegund starfseminnar. Hægt er að sjá þessa flokka á heimasíðu Skattsins. Flokkunin gengur út frá því að því hærra sem menntunarstig og ábyrgðarstaða (mannaforráð) eru, því hærra sé reiknað endurgjald. (Sjá hlekk neðst, reiknað endurgjald).

En það sem kemur ekki þar fram en þarf að huga að er hversu hátt starfshlutfallið er og ekki síst hvernig reksturinn gengur. Ef verktakastarfsemin krefst ekki nema 50% starfshlutfalls þá er réttast að reikna endurgjaldið svona: 0,50 x reiknað endurgjald skv. viðmiðunarflokki Skattsins = reiknað endurgjald sem notað er.

Ef reiknað endurgjald eftir viðmiðunarflokki Skattsins er hærra en hagnaður fyrir reiknað endurgjald, þá er hægt til viðmiðunar að reikna endurgjaldið sem 84% af þeim hagnaði. (Tekjur – kostnaður) x 0,84 = reiknað endurgjald. Ef stuðullinn er hærri en um 84% þá endar reksturinn í tapi.

Ef reksturinn endar í tapi, þá er hægt að lækka endurgjaldið í framtalinu, sem nemur tapinu og tekjuskatturinn er þá endurgreiddur.

Rekstrarform og ábyrgð

HVAÐ MEÐ ÁBYRGÐ VERKTAKA?

Á það má benda að ef virðisaukaskattur og staðgreiðsla tekjuskatts af launum/reiknuðu endurgjaldi eru greidd eftir eindaga þá reiknast 1% álag á dag fyrir hvern dag eftir eindaga, þó ekki hærra en 10%. 1% á dag jafngildir 365% ársvöxtum en vextir á innistæðum eru mældir í ársvöxtum. Frá og með 11. degi þá er ekki lengur lagt á 1% álag heldur eingöngu dráttarvextir.

Eftir tíu daga fram yfir eindaga þá hafa bæst við 10% ofan á höfuðstólinn.

Virðisaukaskattur og staðgreiðsla tekjuskatts af launum/reiknuðu endurgjaldi hafa þá sérstöðu að þessir fjármunir eru alltaf í eigu ríkisins en verktakar eru innheimtumenn þess.

Annað sem ber að varast er að ef tekjur eru ekki rétt uppgefnar í framtali þá getur verktakinn átt á hættu að fá 25% sektarálag ofan á tekjur sem ekki voru gefnar upp. En Skatturinn fær til sín verktakamiða senda frá rekstraraðilum sem hafa keypt til sín þjónustu / vinnuframlag frá verktökum, sem eru síðan bornir saman við uppgefnar tekjur verktakans.

ER HAGSTÆTT AÐ STOFNA FÉLAG / FYRIRTÆKI FYRIR MINN REKSTUR?

Ekkert endilega, það fer eftir aðstæðum. Skattbyrðin getur verið svipuð hjá ehf. eða slf. og í rekstri á eigin kennitölu, en það fer eftir aðstæðum. Það er dýrara að vera með félag en að vera í rekstri á eigin kennitölu. Það kostar að stofna félag, kostar meira að gera það upp á hverju ári en einstaklingsrekstur, og kostar að leggja það niður.

Mun auðveldara er fyrir verktaka með rekstur á eigin kennitölu að hefja rekstur og hætta (og kostar ekkert).

Helstu kostirnir við ehf. eru að þá myndast skel utan um reksturinn og takmörkun ábyrgðar.

Ef fleiri en einn koma að rekstrinum þá er formið ehf. langhentugast.

Hversu víðtækar heimildir hefur Skatturinn til að skoða bókhaldsgögn?

Víðtækar. Skatturinn getur krafist þess að fá allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn, til að mynda bókhald og fylgiskjöl, og það þarf að láta þau í té ókeypis. Best er því að hafa bókhaldið í lagi og geyma öll gögn í sjö ár.

Frekari upplýsingar

Hvernig er að fá ráðgjöf frá Skattinum?

Skatturinn býður upp á góða þjónustu og þar er fínt að fá upplýsingar um praktísk atriði. Allar upplýsingar á heimasíðu Skattsins hafa batnað verulega undanfarin ár.

HVERT GET ÉG LEITAÐ EF MIG VANTAR NÁNARI UPPLÝSINGAR UM BÓKFÆRSLU OG SKATTSKIL?

Heimasíða Skattsins (skatturinn.is), ágætt að byrja þar til að afla sér frekari upplýsinga.

Hér eru nokkrar flýtileiðir á vef Skattsins:

Annað:

Allar upplýsingar, útreikningar og textar á þessari síðu eru settir fram án ábyrgðar.

Viltu að við sjáum um þetta fyrir þig?

Við aðstoðum við að hefja rekstur og sjáum um bókhald og skil. Fyrsti fundurinn er ókeypis. Sendu okkur línu og við svörum innan sólarhrings.

Back To Top