Skattframtal einstaklinga
Við gerum skattframtalið fyrir þig, tryggjum rétt skil á réttum tíma og að þú fáir þann frádrátt og þær bætur sem þú átt rétt á. Forskráð framtal nær ekki yfir allt, til að mynda verktakatekjur, rekstur á eigin kennitölu eða hlutabréfaviðskipti.
Verð fyrir framtal 2027
Grunngjald: 54.000 kr. m/vsk
Ungmenni sem búa hjá foreldrum: 12.500 kr. m/vsk
Ef þú ert í rekstri bætist við tímagjald fyrir bókfærslu, rekstrarskýrslu og uppgjör.
Svona virkar þetta
- Þú hefur samband í gegnum formið eða á skatt@skatt.is. Þú getur sent okkur skilalykil fagaðila.
- Við skoðum fyrst. Sjáum hvað vantar og biðjum um upplýsingar.
- Við gerum framtalið. Við athugum frádrætti og berum saman við framtal fyrra árs til að sjá hvort eitthvað vanti. Við gerum rekstrarskýrslu ef við á.
- Þú samþykkir. Þú færð bráðabirgðaútreikning í tölvupósti og við biðjum um staðfestingu frá þér áður en við sendum inn.
Svona sækir þú skilalykil fagaðila
- Farðu á Sækja veflykil hjá Skattinum.
- Skráðu kennitöluna þína og veldu að fá skilalykil fagaðila sendan í heimabankann. Hann birtist þar undir rafrænum skjölum.
- Sendu okkur lykilinn á skatt@skatt.is.
Skilafrestur skattframtals 2027
27.02.27 – Netframtal einstaklinga 2027 [v/uppgjörsárs 2026] verður opnað á þjónustuvefnum, hjá Skattinum
13.03.27 – Lokaskiladagur almenns frests fyrir einstaklingsframtöl
15.04.27 – Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum utan rekstrar
15.04.27 – Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum með rekstur
29.05.27 – Álagning einstaklinga
Lækkun á tekjuskattstofni
Við viljum benda á að hægt er að sækja um lækkun (ívilnun) á tekjuskattstofni. Þar má nefna kostnað vegna jarðarfarar, glasafrjóvgana og ungmenna í framhaldsskóla. Einnig vegna veikinda, slysa, ellihrörleika, mannsláts, veikinda/fötlunar barns, framfærslu vandamanna, eignatjóns og tapaðra krafna.
- Umsókn um lækkun/ívilnun á tekjuskattstofni við tilteknar aðstæður, Viðmiðunarreglur Skattsins um ívilnun
Viltu aðstoð við framtalið?
Við gerum framtalið, athugum frádrætti og sendum ekki inn fyrr en þú samþykkir. Sendu okkur línu og við svörum innan sólarhrings.
