Skip to content

FRAMTAL OG SKIL

VIÐ BJÓÐUM UPP Á FRAMTALSÞJÓNUSTU.

Skattframtal einstaklinga

Við viljum ekki greiða meira til samfélagsins en okkur ber og fá þær bætur sem við eigum rétt á. Við viljum hugsa um okkar hagsmuni gagnvart skattayfirvöldum og ekki sé á okkur hallað.

Forskráning og villuprófun á skattframtölum er góð, en ná ekki til þeirra sem eru að fá verktakatekjur og eru í rekstri á eigin kennitölu. Eins geta villuprófanir og ábendingar verið torræðar.

Vantar þig aðstoð við skattframtal? Við bjóðum upp á framtalsþjónustu fyrir einstaklinga og verktaka. Bókaðu núna og við tryggjum örugg skil á réttum tíma.

SKILAFRESTIR

27.02.26  –  Netframtal einstaklinga 2026 [v/uppgjörsárs 2025] verður opnað á þjónustuvefnum, hjá Skattinum

13.03.26  –  Lokaskiladagur almenns frests fyrir einstaklingsframtöl

15.04.26  –  Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum utan rekstrar

15.04.26  –  Lokaskiladagur atvinnumanna á einstaklingsframtölum með rekstur

29.05.26  –  Álagning einstaklinga

Okkur langar að nefna að hægt er að sækja um lækkun (ívilnun) á tekjuskattstofni. Þar má nefna vegna jarðarfarar, glasafrjóvgana og ungmenna í framhaldsskóla. Eins vegna veikinda, slys, ellihrörleika, mannsláts, veikindi/fötlun barns, framfærslu vandamanna, eignatjón og tapaðar kröfur.

Back To Top